Ólafur á Söndum í tali og tónum 13.09.2014

Ólafur á Söndum í tali og tónum
Þingeyri við Dýrafjörð
13. september 2014

Laugardaginn 13. september nk. verður haldin ráðstefna á Þingeyri við Dýrafjörð undir yfirskriftinniSr. Ólafur Jónsson á Söndum í tali og tónum. Ráðstefnan verður í félagsheimilinu og hefst kl. 11 fyrir hádegi. Sex fræðimenn flytja erindi um kveðskap sr. Ólafs og tónlistina við hann. Sönghópur frá Þingeyri flytur nokkur lög eftir skáldið og leikfélagið Höfrungur setur upp stuttan leikþátt.

Ráðstefnan er á vegum Safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri og prófessorsembættis Jóns Sigurðssonar við Háskóla Íslands í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Þingeyrarkirkju, íþróttafélagið Höfrung á Þingeyri, Skjalasafn Vestfjarða og Byggðasafn Vestfjarða.

Séra Ólafur Jónsson (um 15601627) á Söndum í Dýrafirði var eitt af höfuðskáldum Íslendinga á fyrri hluta 17. aldar. Hann safnaði kvæðum sínum saman í eitt handrit, sem var skrifað upp mörgum sinnum eftir hans tíð. Nú á dögum er vitað um 25 eftirrit kvæðabókar Ólafs en eiginhandarrit hans er þó glatað. Við mörg af kvæðum Ólafs eru settar nótur og er talið að hann hafi jafnvel samið sum lögin sjálfur. Allir eru velkomnir. Sjá nánar á heimasíðu Safns Jóns Sigurðssonar www.hrafnseyri.is

 

Dagskrá ráðstefnunnar:

11:00 – 11:10                         Setning ráðstefnu: Valdimar J. Halldórsson staðarhaldari á Hrafnseyri

                                              Kynnir: Guðmundur Hálfdanarson prófessor

11:10 – 11:30                         „Bókin Edda og Biblían“. Viðhorf til kveðskapar á dögum sr. Ólafs

                                             Jónssonar á Söndum: Margrét Eggertsdóttir

11:30 – 11:50                         Lögin við kvæði Ólafs Jónssonar: Árni Heimir Ingólfsson

11:50 – 12:00                         Umræður

12:00 – 12:45                         Hádegishlé

12:45  – 13:00                        Leikþáttur: Elvar Logi Hannesson segir frá og les upp úr leikverki

                                             sínu um sr. Ólaf á Söndum

13:00 – 13:20                         Sálgæsla skáldprests. Um kveðskap sr. Ólafs Jónssonar á Söndum:

                                             Þórunn Sigurðardóttir

13:20 – 13:40                         Sérarnir Ólafur og Oddur, hvað eiga þessi tvö vinsælu sálmaskáld

                                             sameiginlegt og hvar liggur sérstaða þeirra í íslenskum 17. og 18. aldar

                                             handritum: Guðrún Laufey Guðmundsdóttir

13:40 – 13:50                         Umræður

13:50 – 14:00                       Tónlistaratriði: Sönghópur frá Þingeyri undir stjórn

                                             Guðrúnar Jónsdóttur söngkonu flytur lög eftir sr. Ólaf á Söndum

14:00 – 14:20                         „Aldingarður sálarinnar“. Um kvæðabók Ólafs Jónssonar og varðveislu

                                             hennar: Johnny Lindholm

14:20 – 14:40                         „Hýr gleður hug minn hásumartíð“: Heimsmynd Ólafs Jónssonar á Söndum

                                             eins og hún birtist í skáldskap hans – og lauslegur samanburður við nokkur

                                             skáld samtíma honum: Ingibjörg Eyþórsdóttir

14:40 – 14:50                         Umræður

14:50 – 15:20                         Ráðstefnuslit og kaffi

 

            Að kaffihléi loknu verður boðið upp á að skoða elstu starfandi vélsmiðju landsins. Einnig verður farið að Söndum og litast um þar sem bærinn stóð forðum tíð.

Fekari upplýsingar  veitir Valdimar J. Halldórsson,  sími: 456 8260 og 845 5518.  Sjá einnig: https://www.facebook.com/#!/hrafnseyri og www.hrafnseyri.is

Til baka

Opnunartími (Opening hours)

1. júní - 3. september

kl. 11:00 - 17:00 alla daga

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Hópar utan opnunartíma
50.000 kr. lágmarksgjald (15 manns).
1.500 kr. fyrir hvern umfram 15.

Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is

 

Upplýsingar

Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.

A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.