Ráðstefna á Þingeyri 13. september 2014

 

Laugardaginn 13. september nk. verður haldin ráðstefna á Þingeyri við Dýrafjörð undir yfirskriftinni Sr. Ólafur Jónsson á Söndum í tali og tónum. Ráðstefnan verður í félagsheimilinu og hefst kl. 11 fyrir hádegi. Sex fræðimenn flytja erindi um kveðskap sr. Ólafs og tónlistina við hann. Sönghópur frá Þingeyri flytur nokkur lög eftir skáldið og leikfélagið Höfrungur setur upp stuttan leikþátt. 

Ráðstefnan er á vegum Safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri og prófessorsembættis Jóns Sigurðssonar við Háskóla Íslands í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Þingeyrarkirkju, íþróttafélagið Höfrung á Þingeyri, Skjalasafn Vestfjarða og Byggðasafn Vestfjarða. 

Séra Ólafur Jónsson (ca 1560‒1627) á Söndum í Dýrafirði var eitt af höfuðskáldum Íslendinga á fyrri hluta 17. aldar. Hann safnaði kvæðum sínum saman í eitt handrit, sem var skrifað upp mörgum sinnum eftir hans tíð. Nú á dögum er vitað um 25 eftirrit kvæðabókar Ólafs en eiginhandarrit hans er þó glatað. Við mörg af kvæðum Ólafs eru settar nótur og er talið að hann hafi jafnvel samið sum lögin sjálfur. 

Allir eru hjartanlega velkomnir.

 

 

Fekari upplýsingar veitir Valdimar J. Halldórsson, sími: 456 8260 og 845 5518. Sjá einnig: https://www.facebook.com/#!/hrafnseyri og www.hrafnseyri.is

Opnunartími (Opening hours)

1. júní - 8. september

kl. 11:00 - 17:00 alla daga

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Hópar utan opnunartíma
Vinsamlegast hafið samband til að bóka komur hópa utan opnunartíma.

Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is

 

Upplýsingar

Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.

A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.