Opið á Hrafnseyri frá 1. júní!

Sýningin um Jón Sigurðsson á Hrafnseyri og kaffihúsið í burstabænum opna þann 1. júní. Almennur opnunartími er frá 11 til 17 alla daga en einnig á öðrum tímum eftir samkomulagi. Öll hjartanlega velkomin!

Á kaffihúsinu í burstabænum verður á boðstólnum, kaffi, vöfflur og kökur ásamt fleiru góðgæti. Burstabærinn var reistur árið 1997 og gefur ágæta mynd af þessu séríslenska byggingarlagi. Bærinn er vinsæll áfangastaður og bæði hægt að sitja með kaffið inni og úti á palli.

Sýningin um ævi, störf og arfleifð Jóns Sigurðssonar var opnuð þann 17. júní 2011 í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu Jóns. Á sýningunni má finna mikinn fróðleik um Jón Sigurðsson, en einnig um goðorðsmanninn Hrafn Sveinbjarnarson sem bjó á staðnum á þrettándu öld, og landnámsfólkið Ánn rauðfeld og Grelöð konu hans sem að öllum líkindum voru fyrst til að setjast að á staðnum.

Þá er rétt að minna á að á Hrafnseyri hafa verið grafnar upp merkilegar fornminjar og má finna fróðleik um þær á skiltum utandyra og inni í burstabænum. Fornleifarannsóknir verða svo í fullum gangi í ágúst og þegar uppgröftur heldur áfram á Auðkúlu og e.t.v. á Hrafnseyri. Stefnt er að því að halda fornleifadag í sumar og bjóða gestum að fræðast um þær rannsóknir sem unnar hafa verið undanfarin ár og yfirstandandi rannsóknir.

Til baka

Upplýsingar

Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.

A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.

Opnunartími (Opening hours)

1. júní - 8. september

kl. 11:00 - 17:00 alla daga

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Hópar utan opnunartíma
Vinsamlegast hafið samband til að bóka komur hópa utan opnunartíma.

Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is