Menntaskólinn á Ísafirði
Ávarp Ingibjargar S. Guðmundsdóttur skólameistara Menntaskólans á Ísafirði við afhjúpun útilistaverksins “Ljóssins” 20. des. 2006
Heiðraða samkoma
Ég býð ykkur öll velkomin til þessarar athafnar. Undirbúningur þessa verks hefur staðið í ein þrjú ár og verið í höndum forvera míns Dr. Ólínu Þorvarðardóttur, sem ætlar greina okkur frá tilurð verksins. Kristjana Þrastardóttir nýstúdent mun afhjúpa verkið.
Skammdegið á Íslandi er mörgum erfitt. Þó að rannsóknir hafi sýnt að Íslendingar séu mun síður haldnir hinu svokallaða skammdegisþunglyndi en aðfluttir þá er myrkrið þrúgandi. Það vill svo skemmtilega til að listamaðurinn, Hreinn Friðfinnsson, höfundur verksins, er alinn upp í Dölunum eins og ég. Þar var ekki rafmagn á sveitabæjunum fyrr en eftir 1960 nema hjá þeim sem keyrðu rafmótora. Oft biluðu þeir og löng tímabil komu án rafmangs. Þá var gripið til steinolíulampanna. Ekki voru ísskápar eða frystikistur. Jólaísinn var til dæmis heimatilbúinn og frystur úti í skafli. Þá var salti stráð í kring um formið sem ísinn var í til að kælingin yrði meiri. Varminn var tekinn úr ísnum til að bræða snjóinn í kring. Þetta er eðlisfræðilegt atriði, og hefur með það að gera að orka varðveitist, flyst einungis á milli efna eða breytir um form.
Nú þegar í hönd fer stysti dagur ársins veitir okkur ekkert af allri þeirri birtu sem fáanleg er. Ljósið sem nú hefur verið afhjúpað og tendrað er svo sannarlega kærkomið og mun án efa bæta geð okkar og heilsu um leið og það lýsir upp skólatorgið okkar.
Ljósið er svokallað orkuljós eða dagsljós, er kalt eins og dagsbirtan. Nú er farið að selja lampa sem eiga að lækna skammdegisþunglyndi. Þeir eiga að hafa þessa sömu eiginleika og ljósið okkar. Við þurfum þá ekki, við getum staðið hér á torginu okkar og baðað okkur í þessu heilsuljósi eins oft og við viljum.
Höfundur verksins Hreinn Friðfinnsson er búsettur í Hollandi og gat ekki verið með okkur hér í dag. Hann sendir kveðjur og þakkir til alls fólksins sem kom að þessu verki, bæði undirbúningi, smíði og uppsetningu.
Það er mér sérstakt ánægjuefni að taka við þessu bjarta listaverki fyrir hönd Menntaskólans á Ísafirði.
Kærar þakkir til allra sem hlut áttu að máli. |