Ljósmyndasýning um líf og starf Jóns Sigurðssonar, foringja Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni við Dani,
sem fæddist á Hrafnseyri 17. júni 1811, en hann lést í Kaupmannahöfn
7. desember 1879, en þar hafði hann átt heimili frá 1833. Auk þess nokkrir munir.
Minningarkapella Jóns Sigurðssonar
Minningarkapella Jóns Sigurðssonar, vígð af Sigurbirni Einarssyni 3.ágúst 1980.
Endurgerður fæðingarbær Jóns er til sýnis, en hann var upphaflega reistur um aldamótin 1800 af afa hans og alnafna.
Í bænum eru seldar veitingar í þjóðlegum stíl. Þar eru einnig til sýnis ýmsir munir frá 19. öld úr Byggðasafni Vestfjarða.
Gamli bærinn, kirkjan og bautasteinn Jóns Sigurðssonar að Hrafnseyri.
Úr Safni Jóns Sigurðssonar
Líkan af gamla bænum og mynd af þjóðfundinum 1851,
kapellan með minningarglugga af Hrafni Sveinbjarnarsyni við skurðaðgerð.
|