Vorið 1845 hélt Jón áleiðis til Íslands til að sitja endurreist Alþingi fyrir Ísafjarðarsýslu og vitja heimahaganna fyrir vestan. Um haustið voru þau Ingibjörg svo gefin saman í hjónaband í Dómkirkjunni í Reykjavík. Þá var hann 34 ára en hún 41 árs. Síðan eru nú liðin 150 ár.
Forseti Alþingis
Frá hinu fyrsta endurreista Alþingi var Jón Sigurðsson potturinn og pannan í öllum þess störfum. Það voru hans skoðanir sem hvað mest mótuðu þingið fyrstu árin og má segja að andi hans hafi svifið þar yfir vötnum allt til þessa dags. Hann var 10 sinnum kjörinn forseti þingsins og hefur enginn maður gegnt þeirri stöðu jafn lengi.
Hugvekja til Íslendinga
Árið 1848 afsalaði Danakonungur sér einveldi. Þá birti Jón Hugvekju til Íslendinga og var það stefnuskrá hans í sjálfstæðisbaráttunni, sem flestir Íslendingar fylgdu undir forystu hans. Hér kom Jón fram með hin sögulegu rök, sem urðu eins og rauður þráður í allri hans baráttu, en aðalatriði hennar var að Íslendingar fengju að ráða sér sjálfir.
"Dagur er upp kominn,
dynja hana fjaðrar,
mál er vílmögum
að vinna erfiði."
Hver voru hin sögulegu rök sem Jón Sigurðsson hamraði á við Dani?
Réttindi Íslands byggðu á Gamla sáttmála frá 1262 sem Íslendingar gerðu við Hákon gamla Noregskonung. þar gengu þeir í samband við Noreg sem ,,frjálst land" með ákveðnum skyldum og réttindum. ,,Öll stjórn þeirra og lög skyldu vera innlend."
Þegar einveldi konungs komst á 1662 játuðu Íslendingar því oki með trega.
Eftir að Danakonungur afsalaði sér einveldi árið 1848, áttu hin fornu réttindi Íslendinga samkvæmt Gamla sáttmála að taka gildi á nýjan leik.

|