Lærðasti stjórnmálamaður Íslands
„Þegar Jón Sigurðsson hóf stjórnmálastarfsemi sína var hann þrítugur að aldri. Undanfarin sjö ár hafði hann unnið hljóðlát fræðimannsstörf við handritarannsóknir í skjalasöfnum Kaupmannahafnar og aflað sér dæmafárrar þekkingar á sögu landsins, högum þess og atvinnuvegum. Hann var án efa lærðasti stjórnmálamaður Íslands, og alla daga var fræðimannsgleðin einn sterkasti þátturinn í lundarfari hans. Sennilega mun vera leitun á stjórnmálamanni hjá nokkurri þjóð, er hafi látið sögu lands síns þjóna málstað nútíðarinnar með slíkri kostgæfni og jafn ríkum árangri og Jón Sigurðsson.“
Sverrir Kristjánsson, sagnfræðingur.

|