Við stofnun lýðveldis á Íslandi 17. júní 1944 fól Alþingi ríkisstjórninni að skipa nefnd til að stýra framkvæmdum á Hrafnseyri í minningu Jóns Sigurðssonar. Þessi nefnd, Hrafnseyrarnefnd, hefur stjórnað framkvæmdum á staðnum síðan og alla tíð starfað launalaust.
Um sextíu þúsund manns hafa sótt Hrafnseyri heim frá því Vigdís Finnbogadóttir opnaði safn Jóns Sigurðssonar 3. ágúst 1980.
Mikil áhersla er lögð á að staðurinn sé snyrtilegur og aðlaðandi og að gestir finni að þeir séu velkomnir og fari á braut með góða tilfinningu fyrir þessum helga sögustað þjóðarinnar.
Hallgrímur Sveinsson
Hrafnseyri í dag
|