Alþjóðleg heimildamyndahátíð
og ráðstefna á Ísafirði
29. maí - 1. júní, 2008

Þann 29. maí - 1. júní næstkomandi heldur NAFA, (Nordic Anthropological Film Association), Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri og Háskólasetur Vestfjarða Sumarháskóla Hrafnseyrar í formi alþjóðlegrar heimildamyndahátíðar og ráðstefnu undir nafninu "Breaking the barriers" eða ,,Hindranir burt" í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Hátíðin/ráðstefnan er haldin í samvinnu við Edinborgarhúsið, félagið Rætur á Ísafirði, Mannfræðideild Háskóla Íslands og Mannfræðifélag Íslands

Heimildamyndahátíð
Myndirnar sem sýndar verða á hátíðinni munu fjalla um fólk sem býr á ýmsum jaðarsvæðum heims og nær að yfirstíga margvíslegar hindranir sem það býr við í sínu daglega lífi í þessu hnattræna samfélagi nútímans. En umbrot og hræringar eiga sér einnig stað á milli ýmissa akademískra fræða. Þess vegna verða líka sýndar myndir þar sem vísvitandi er blandað saman fögum eins og t.d.mannfræði og listum, mannfræði og sagnfræði (fornleifafræði, landafræði, tækni o.fl.) með það fyrir augum að rannsaka heiminn á nýjan og öðruvísi hátt en áður hefur tíðkast.

Myndirnar verða valdar af ákveðinni matsnefnd innan NAFA, sem stofnuð var í janúar 2008, í samráði við íslenska samstarfsaðila.

Ráðstefna
Auk sýninga á heimildamyndum, sem sýndar verða eftir hádegi og fram á kvöld alla daga hátíðarinnar, verða fyrirlestrar tengdir myndunum haldnir á morgnanna með erlendum og innlendum fyrirlesurum. Nokkrir af þeim erlendu fyrirlesurum sem þegar (desember 2007) hafa boðað þátttöku sína á hátíðina eru Jay Ruby, Asen Balikci, Rossella Ragazzi and Sarah Pink. Að auki hefur kvikmyndagerðamönnum frá þróunarlöndum sérstaklega verið boðið að taka þátt í ráðstefnunni.

Heimildamyndahátíðin og fyrirlestrarnir eru opnir öllum. Þátttökugjald, sem bæði gildir fyrir heimildamyndahátíðina og ráðstefnuna er 5000 kr. nema fyrir meðlimi NAFA, sem borga 2500 kr. (Árlegt félagsgjald í NAFA er um það bil 33.30 EUR.) Þátttökugjald fyrir nemendur verður niðurgreitt og er því einungis 1.000 kr

Þátttaka í hátíðinni og ráðstefnunni er metin til eininga í mannfræði við Háskóla Íslands sem valnámskeið.

Skiladagur mynda til matsefndar
Myndir sem fólk óskar að senda til matsnefndar NAFA skulu sendast sem DVD/VHS kópíur til:
The NAFA 2008 Selection Committee
c/o Peter I. Crawford
Intervention Press
Castenschioldsvej 7
DK-8270 Hoejbjerg
Denmark

Síðasti skiladagur mynda til matsnefndar er: 1. apríl 2008

Allar aðrar upplýsingar eru veittar af Valdimar J. Halldórssyni.
Sími 845 5518, e-mail: hrafnseyri@hrafnseyri.is
Ísafjörður
Edinborgarhúsið
Hrafnseyri
Háskólasetur Vestfjarða