21. desember 2006 08:37

Útilistaverkið Ljósið

Útilistaverkið Ljósið eftir Hrein Friðfinnsson var vígt á skólatorgi MÍ þann 20. des. Það er tileiknað Jóni Sigurðssyni forseta.

Hjónin Marías Þ. Guðmundsson og Málfríður Finnsdóttir stofnuðu Minnisvarðasjóð Jóns Sigurðssonar til að koma upp listaverki á lóð MÍ. Ísafjarðarbær, Listskreytingasjóður ríkissins, Fasteignir ríkissjóðs og skólinn styrktu einnig málefnið myndarlega.

Dr. Ólína Þorvarðardóttir stjórnaði öllum undirbúningi og afhenti skólanum verkið. Einn af nýstúdentunum, Kristjana Þrastardóttir, afhjúpaði það.

Listamaðurinn Hreinn Friðfinnsson er búsettur í Hollandi og gat ekki verið viðstaddur en sendi skólanum kveðjur og hamingjuóskir.

Skólinn þakkar gefendum verksins og öllum sem að því unnu kærlega fyrir fallegt listaverk.

Fréttatilkynning frá BB

Til baka




© Hrafnseyri • Arnarfirði • Sími: 456-8260 og 845-5518 • Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is
Netheimar

Fréttatilkynning 21 desember 2006: Útilistaverkið Ljósið