Engu skoti var hleypt af og enginn var líflátinn

Svo ólíklegt sem það má nú teljast, stóðu skjalasöfn dönsku stjórnarinnar Jóni nánast opin en þar smíðaði hann vopnin í baráttu þjóðar sinnar fyrir innlendri stjórn. Þau vopn voru hvorki byssur né sverð, heldur söguleg og siðferðileg rök. Engu skoti var hleypt af í þeirri baráttu og enginn líflátinn. Danir tóku mark á sögulegum rökum og veittu Íslandi takmarkaða sjálfstjórn 1874, einmitt á þeim tíma sem önnur nýlenduveldi voru að brjóta undir sig lönd og þjóðir, sem ekkert höfðu til saka unnið.
Nokkrum árum eftir að Íslendingar stofnuðu lýðveldi sitt á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar, afhentu Danir fyrrum nýlendu sinni þjóðargersemar hennar, handritin, sem Jón hafði varið stórum hluta ævi sinnar til að rannsaka. Hér var um heimsatburð að ræða, sem er trúlega einsdæmi í samskiptum nýlenduveldis við fyrrum nýlendu sína. Jafngildir það því að Bretar hefðu opnað British Museum og skilað til dæmi Egyptum, þjóðargersemum þeirra, sem þar eru varðveittar.

Framganga Dana í garð Íslands í þeim málum sem hér hafa verið dregin fram í dagsljósið, er skínandi fordæmi fyrir sumar þjóðir heims í dag og gætu ýmsir leiðtogar þeirra margt af þeirri sögu lært.

Hvað Íslendinga snertir, þá virðist kominn tími til fyrir okkur að endurskoða ýmislegt í sögu okkar sem Dönum viðkemur. Það er ekki viturlegt að halda einungis því á lofti sem miður fór í samskiptum þjóðanna, heldur þurfum við að hrósa Dönum fyrir það sem þeir gerðu vel. Það gæti verið góð landkynning fyrir okkur sjálfa.

Lokaorð
Hér að framan hefur verið fjallað í stuttu máli um Jón Sigurðsson, þjóðhetju Íslendinga. Þessa umfjöllun má alls ekki skilja sem svo að hann hafi verið gallalaus maður. Að sjálfsögðu var hann það ekki frekar en aðrir dauðlegir menn. En hinu verður ekki neitað, að Jón var óvanalega vel gerður, bæði til líkama og sálar. „Þar eignuðust Íslendingar mann, sem lánaðist, varð bæði gæfumaður sjálfur og gæfa þjóð sinni.“ sagði prófessor Sigurður Nordal.

Til baka




© Hrafnseyri • Arnarfirði • Sími: 456-8260 og 845-5518 • Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is
Netheimar

Jón Sigurðsson - Engu skoti var hleypt af og enginn var líflátinn