Frelsisbarátta þjóðar verður seint unnin af einum manni þó mikið sé komið undir hiklausum forystumönnum. Merkilegt er, að einhverjir hörðustu og óhvikulustu stuðningsmenn Jóns voru prestar. Fimm þeirra skulu hér nafngreindir.
- Séra Hannes Stephensen. Prestur á Ytra-Hólmi. Alþingismaður Borgfirðinga. Eldheitur stuðningsmaður Jóns og talinn með málsnjöllustu mönnum á þingi.
- Séra Halldór Jónsson. Prestur á Hofi í Vopnafirði. Alþingismaður N-Múlasýslu. Hann var konungkjörinn fulltrúi á þjóðfundi og sá eini úr þeim hópi sem hafði kjark til að fylgja Jóni Sigurðssyni að málum.
- Séra Ólafur E. Johnsen, prestur á Stað á Reykjanesi. Frændi Jóns og bróðir Ingibjargar konu hans. Fulltrúi Barðstrendinga á þjóðfundi. Hafði sig alla tíð mjög í frammi í stuðningi við Jón frænda sinn. ,,Áhlaupamaður með stórt hjarta og heitt geð."
- Séra Ólafur Sívertsen. Prestur í Flatey á Breiðafirði. Alþingismaður Barðstrendinga. Helsti forgöngumaður Kollabúðarfunda. Einn af lykilmönnum í stuðningi við Ný félagsrit.
- Séra Eiríkur Kúld. Prestur í Stykkishólmi. Alþingismaður Snæfellinga og Barðstrendinga um langt skeið. Var einn starfhæfasti maður í flokki Jóns á þingi og oft talsmaður hans, enda nefndur „munnur Jóns Sigurðssonar.“
Jón Guðmundsson ritstjóri
Einn er sá maður sem síst má gleyma þegar talað er um stuðningsmenn Jóns Sigurðssonar og það er Jón Guðmundsson ritstjóri Þjóðólfs og alþingismaður Skaftfellinga. Um langa hríð var hann nánasti samverkamaður Jóns í þjóðmálabaráttunni og sá sem mest mæddi á hér heima, enda kallaði hann sig "skugga" Jóns Sigurðssonar. Hann fórnaði sýslumannsembætti í Skaftafellssýslu þegar hann fór með foringja sínum á konungsfund, að afloknum þjóðfundi.
Eftir því sem næst verður komist, hafa Íslendingar alveg gleymt að heiðra minningu Jóns Guðmundssonar og gekk hann þó næstur Jóni Sigurðssyni í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Jón Sigurðsson og Danir
Það er mat okkar Íslendinga að stjórn Dana á landi okkar í gegnum aldirnar hafi ekki verið viturleg. En framkoma þeirra við Jón Sigurðsson verður seint metin að verðleikum, enda var hann maður þeirrar gerðar, að Danir báru fyrir honum mikla virðingu.
Þó ótrúlegt sé, vildu margir þeirra flest fyrir hann gera, en hann átti að sjálfsögðu einnig sína hörðu andstæðinga á þeim bæ. Danir sáu Jóni fyrir vinnu, en hann var helsti sérfræðingur í íslensku handritunum á 19. öld og í sögu Íslands var honum enginn fremri. Sjaldan mun svo lítið hafa verið í danska ríkiskassanum, að ekki væri hægt að greiða Jón Sigurðssyni fyrir fræðistörf hans. Munu þess fá dæmi ef nokkur, að nýlenduveldi hafi komið svo fram við frelsisleiðtoga hjálendu sinnar sem Danir við Jón Sigurðsson, en í raun áttu þeir alls kostar við hann, ef út í það hefði verið farið. |