17.6.2009
Sumarháskóli á Hrafnseyri

Sumarháskóli á Hrafnseyri

27. - 31. júlí

Þjóð og þjóðernisstefna á hnattvæddum tímum

Þá er Sumarháskóla Hrafnseyrar lokið þetta sumarið. Um var að ræða 5 daga námskeið þar sem nemendur voru kynntir fyrir sögu Íslands og því hvernig við mannfólkið myndum ýmsar gerðir félagslegra hópa, samfélaga og þjóða, og teljum okkur tilheyra þeim á einn eða annann hátt. Einnig var hnattvæðingunni gerð skil og fjallað um það hvernig hún bæði leysir upp þessar hópmyndanir og myndar nýjar. Tólf nemendur tóku þátt í námskeiðinu. Níu þeirra komu frá Kanada, einn frá Spáni annar Þýskalandi og sá þriðji frá Reykjavík. Kennarar voru mannfræðingarnir Richard Jenkins frá Sehffield Háskóla í Englandi og Valdimar J. Halldórsson staðarhaldari á Hrafnseyri.

     

12.6.2009
Dagskrá hátíðarhalda 17. júní 2009 að Hrafnseyri.
17. júní dagskráin á Hrafnseyri 2009





14:00-14:45 Messa: Séra Leifur Ragnar Jónsson, sóknarprestur í
Patreksfjarðarprestakalli prédikar, séra Agnes M. Sigurðardóttir prófastur þjónar fyrir
altari. Kirkjukór Þingeyrar syngur.

15:00-15:05 Kynnir: Eiríkur Finnur Greipsson formaður
Hrafnseyrarnefndar

15:05-15:25 Hátíðarræða dagsins: Sturla Böðvarsson fyrrv. ráðherra

15:30-16:00 Söngur: MÍ kvartetinn

16:00-17:00 Kaffihlaðborð



Kári Eiríksson listmálari sýnir málverk sín í Burstabænum
     

22.8.2008
Margaret Cormack fjallar um dýrlinga í vestfirsku kirkjum.
Margaret Cormack fjallar um dýrlinga í vestfirsku kirkjum.
   
Vel heppnað málþing um kaþólska Vestfirði

Málþing, er bar yfirskriftina ,,Kaþólskir Vestfirðir í fortíð og nútíð” var haldið á Hrafnseyri við Arnarfjörð fyrir skemmstu. Er það samdóma álit þeirra sem að þinginu stóðu, að það hafi tekist vel í alla staði. Þinghaldarar voru Vestfirðir á miðöldum, Háskólasetur Vestfjarða, Fjölmenningarsetur, Safn Jóns Sigurðssonar, Héraðsskjalasafnið á Ísafirði og Vestfjarðaprófastsdæmi. Málþingið var eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk úr Menningarsjóði Vestfjarða síðastliðið vor.

Áhugaverð erindi voru flutt á málþinginu, Torfi H. Tulinius talaði um hvernig kaþólsk trú birtist á fyrstu öldum byggðar á Vestfjörðum; Margaret Cormack fjallaði um vestfirskar kirkjur á miðöldum og hvaða dýrlingum þær voru helst helgaðar;Einar Sigurbjörnsson velti fyrir sér hugsanlegri afstöðu Hrafns Sveinbjarnarsonar í átökum veraldlegra höfðingja undir forystu Kolbeins Tumasonar, við Guðmund biskup Arason. Heimildir eru þögular um viðhorf Hrafns og í hvaða fylkingu hann skipaði sér. Gunnvör Karlsdóttir ræddi um óvættina Selkollu og birtingarmynd hinnar kaþólsku hugmyndafræði í sögunni um hana, eins og hún kemur fram í Guðmundar sögu; Helga Kress taldi ólíklegt að skriftamál Ólafar ríku væru í raun höfð eftir henni sjálfri, fremur væri hér um að ræða hugrenningar skrifarans, byggðar m.a. á öðrum ritum. Micaela Kristin-Kali velti upp spurningunni um það hvort margt hafi í raun snúist til betri vegar með tilkomu hins nýja mótmælendasiðar og Anna Wojtynska mannfræðingur fjallaði um það hvernig Pólverjar hér á landi upplifi sig sem þjóð og trúarhóp. Í erindi hennar var sjónum beint að kaþólsku sið á Íslandi í dag en fjölgað hefur í kaþólska söfnuðinum á Íslandi á ný með tilkomu nýrra íbúa.

Dagskrá þingsins lauk með samkirkjulegri bænagjörð í Hrafnseyrarkirkju, en fyrirkomulag bænagjörðarinnar er með sama sniði bæði hjá kaþólsku kirkjunni og mótmælendakirkjunni.

     

23.8.2008
Birna og Þorvaldur
Birna og Þorvaldur
   
Minningarskjöldur um Hrafn Sveinbjarnarson afhjúpaður

Birna Jónsdóttir formaður læknafélag Íslands og Þorvaldur Veigar Guðmundsson fyrrverandi læknir afhjúpa minningarskjöld um Hrafn Sveinbjarnarson (milli þeirra og steinda glugganns af Hrafni) í Hrafnseyrarkapellu þar sem á er letrað:






Til einskins var honum svá títt

hvárki til svefns né til matar,

ef sjúkir menn kómu á fund hans

at eigi mundi hann þeim fyrst

nökkura miskunn veita

Skjöldurinn er teiknaður af Steinþóri Sigurðssyni

     

1 2 næsta síða »





© Hrafnseyri • Arnarfirði • Sími: 456-8260 og 845-5518 • Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is
Netheimar

Fréttir